Útilegumenn í náttúru Íslands
Vefsvæðið fjallar um viðfangsefni sem má nefna náttúrunytjar þar sem fjölþætt handverk tengist útiveru og að komast af í náttúrunni á einfaldan hátt eins og skátum hefur verið kennt um áraraðir. Á ensku er er þessi lífsýn gjarnan nefnd Bushcraft. Fátt er meira gefandi en að dvelja í náttúrunni um lengri eða skemmri tíma. Íslensk náttúra er heillandi heimur þar sem allir geta notið sín, en hver og einn verður að að sjálfsögðu að sníða sér stakk eftir vexti. Það eru ótrúlega margar lífverur í náttúrunni okkar sem við nytjum lítið eða ekkert og margar af þeim eru frábærar til að neyta á viðkomandi stað á daglangri göngu. Þeir sem reynt hafa vita hvað silungurinn er góður þegar hans er neytt á veiðistað hvort sem hann er soðinn, grillaður eða sem best er, að gera af honum súpu með íslenskri flóru. Sæt og góð seiði (te) má og gera nær hvar sem maður er á landinu yfir há sumarið. Með því að safna jurtunum og þurrka þær hvort sem þær eru ætlaðar í seiði eða nota sem krydd með fiski eða kjöti þá lengja þær sumarið og vekja þægilegar minningar um útiveruna. Sú athöfn að laga kaffið sitt á áningastað t.d. ketilkaffi í heimasmíðuðum katli gefur kaffinu nýjar víddir. Að hafa smíðað helstu verkfæri og búnað sjálfur sem hafður er um hönd í útivistinni eins og hnífa, bönd, leðurpoka stóra sem smáa gerir dvölina að ógleymanlegri upplifun. Fjöldi námskeiða er í boði ár hvert víða um land sem tengjast þessu viðfangsefni eins og tálgun í ferskan við, hnífagerð, leðursaumur svo eitthvað sé nefnt. Benda má á námskeiðssíður Silfurskóga, Handverkshússins og Listalindar.
Krækjur að góðum vefsetrum er tengjast viðfangsefninu
Woodlore
Bison Bushcraft
Bearclaw Bushcraft
Hnífar, sverð og bogar
Fire and Steel
Seakayak Iceland
