Námskeið

Höldum námskeið tengd handverki, bæði er um hóp- og einstaklingskennslu að ræða. Þar sem námskeiðin eru sniðin að þörfum viðskipavinarins. Flest námskeiðin standa yfir í sex klukkustundir með einu matarhléi. 

Skógarnytjar I

Námskeið í tálgun fyrir byrjendur þar sem tálgað er í ferskan við. Nemendafjöldi 1 til 12. Lengd námskeiðsins eru um 12 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Tálguhnífur fylgir og handhægt áhald til að halda við bitinu í hnífnum. Námskeiðsstaður hvar sem er, helst með aðgang að smíðastofu. Yfir sumartímann er möguleiki á að halda námskeiðið úti í skógi. Myndir.

Skógarnytjar II

Námskeið þar sem fengist er við tálgun í ferskan við. Fjöldi  allt að 8 nemendur. Lengd námskeiðsins 6 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Nemendur vinna að tveimur megin verkefnum litlu fuglahúsi og kertastjaka. Tálguhnífur fylgir námskeiðinu og handhægt áhald til að halda við bitinu í hnífnum.  Námskeiðsstaður hvar sem er.  Myndir.

Fatatölur úr tré

Námskeið þar sem nemandinn kynnist grunnþáttum við smíði á fatatölum úr tré. Nemendafjöldi 4. Lengd námskeiðsins  er 6 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Námskeiðsstaður hvar sem er. Myndir.  Smíðar fatatölur

Málmskartgripir

Námskeið þar sem fengist er við smíði skargripa úr kopar og messing (látún). Nemendafjöldi 6-8. Lengd námskeiðsins 6 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Námskeiðsstaður hvar sem er með aðgang að smíðastofu.  Myndir.

Málmskartgripir og koparskálar

Námskeið þar sem fengist er við smíði skargripa úr kopar og messing (látún) og smíði einnar eða tveggja koparskála. Nemendafjöldi 6. Lengd námskeiðsins 6 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Námskeiðsstaður hvar sem er með aðgang að smíðastofu.  Myndir.

Tréskartgripir

Námskeið þar sem fengist er við smíði skargripa úr tré. Nemendafjöldi 6-8. Lengd námskeiðsins 6 klukkustundir eða eftir samkomulagi. Námskeiðsstaður hvar sem er helst með aðgang að smíðastofu.  Myndir.

Tifsögun

Námskeið í meðferð tifsaga þar sem nemandinn kynnist mismunandi tifsögum og sagarblöðum sem notuð er í þær. Nemandinn tekst á við að saga út hluti bæði úr málmum og mismunandi viðartegundum. Nemendafjöldi 4. Lengd námskeiðsins eru 6 klukkustundir. Námskeiðsstaður í Stykkishólmi.  Myndir.

Koparsláttur

Námskeið í koparslætti fyrir byrjendur þar sem smíðað er að mestu úr kopar. Hluti námskeiðsins felur í sér að saga út verkefnin í tifsög. Nemandinn tekst á við að smíða eina stóra skál, hefur svo valkost um að smíða litla skál fyrir teljós, veiðispúna og sitt hvð fleira.  Nemendafjöldi 4 - 6. Lengd námskeiðsins eru 6 klukkustundir. Námskeiðsstaður í Stykkishólmi  eða þar sem aðstaða er viðunnandi.  Myndir.

Hugleiðingar um námskeið

Hugtakið námskeið getur falið í sér  nokkrar víddir. Námskeið geta verið stutt og löng til eru svonefnd örnámskeið og röð námskeiða sem við nefnum oft nám. Örnámskeið standa  venjulega stutt yfir eða 2-3 klst. Stutt námskeið eru gjarnan um 6 – 9 klst. og þau lengri 9 klst og lengur. Námskeiðaröð getur verið röð námskeiða af sama toga eða röð af blönduðum námskeiðum ótengdum sem tekin eru yfir langt tímabil eins og áratug eða lengur. Námskeið er nám og líta má á að eitt námskeið sé hluti af stærri heild samanber nemandi sem situr mörg skipulögð námskeið (nám) öðlast ákveðna þekkingu. Þá má velta því fyrir sér hvaða gagn við höfum af því að sækja námskeið eins og handverksnámskeið. Það er harla ólíklegt að við hittum naglann á höfuðið í fyrsta höggi á leið okkar upp á réttu hilluna í handverkinu eða lífinu. Ekki er óalgengt að fólk fari á námskeið tengt tískusveiflu í samfélaginu, þegar heim er komið fjarar áhuginn út vegna einhverra aðstæðna. Leiða má rök að því að viðkomandi námskeið nýtist samt seinna á lífleiðinni. Með því að sækja mörg ólík handverksnámskeið byggjum við upp grunn þekkingar, kynnumst nýjum efnum og aðferðum sem við þekktum ekki áður og sjónarmiðum sem við höfðum ekki einu sinni hugleitt að væru til. Þá förum við að geta skapað sjálf, hannað í mismunandi efni og framkvæmt andans hugarsmíð t.d. með því að setja saman hluti úr ólíkum efnum og þar með stuðlað að því að áhuginn fjarar ekki svo glatt út og viðhelst af sjálfu sér. Það er þá sem við getum farið að þróa og þroska okkar eigið handverk skref fyrir skref, handverk sem við höfum áhuga á hverju sinni hvort sem unnið er með hörð efni eins og málma og gler eða mjúk efni eins og leður og tau svo dæmi séu tekin. Það er mjög tímafrekt að þróa og þroska sitt eigið handverk. Bak við lítinn hlut liggur oft mikil vinna í þróun svo kemur að því að vinna hlutinn sjálfan sem er þáttur út af fyrir sig. Þá þarf að aga handbrögðin og vera í sátt við það sem verður til milli handanna hverju sinni. Þá er og mikilvægt er að fá fram skoðanir annarra. Ekki til að rjúka í einhverjar breytingar umhugsunarlaust heldur til að safna í sarpinn til að geta áttað sig betur á því sem milli handanna er.

Trausti Tryggvason 

Silfurskógar ehf.  Silfurgötu 41  340 Stykkishólmi. Símar 4381341 8642341 7702341  7772341