Numicon eru ensk stærðfræði námsgögn og námsefni sem eru byggð á hugmyndum Montessori, Stern og Cuisenaire. Námsgögnin eru fjölskynja og gefa nemendum m.a. tækifæri á að sjá hvernig mynstur stærðfræðinnar lítur út, þekkja tölur sem heildir , sjá gildi þeirra og finna fjölda án þess að telja.
Hugmyndasmiðirnir eru Romey Satwell, Ruth Atkinson og Tony Wing ásamt aðstoðarfólki sem hefur bæst við í hópinn á síðustu árum. Nú starfa margir Numicon kennarar fyrir Numicon í fjölmörgum löndum.
Námskeiðshaldari á Íslandi er Kristín Wallis. Ég vinn sjálfstætt fyrir hönd Numicon Ltd. og hef gert síðan 2005. Ég bý í Oxfordshire í Englandi og skipulegg námsferðir til Englands, fyrir stóra sem smáa hópa. Ferðirnar samanstanda m.a. af skólaheimsóknum, Numicon námskeiði og ferðum á sýningar inn til London þegar þær eru í boði. Fáðu nánari upplýsingar með því að senda mér tölvupóst kristinwallis@vikingur.co.uk. Ég er einnig á Facebook undir Kristín Wallis (Kristín Wallis Numicon). Endilega sendu inn vinarbeiðni og þú getur nýtt þér efnið og upplýsingarnar sem þar eru í boði.
Námsefnið og notkun námsgagnanna byggir upp traustan stærðfræðigrunn og gefur öllum jafnt tækifæri á að nema stærðfræðina á eigin hraða. Námsefnið er sérlega vel uppbyggt og tenging verkefna augljós. Numicon auðveldar þeim sem leggur verkefnið fyrir að sjá hvernig nemendurnir hugsa. Því er auðvelt að hrósa nemendum samstundis og leiðrétta þegar þarf með viðeigandi spurningum sem leiðir þá aftur á rétt spor.
Numicon er hugsað fyrir börn á aldrinum 3-10 ára. Það hentar þó öllum aldurshópum sem eru á svokölluðu ‚gráu svæði‘ eða þurfa á hægari yfirferð að halda að einhverjum orsökum, hvort sem um börn, unglinga eða fullorðna eru að ræða.
Meðal námsefnis og hugmynda með notkun Numcion námsgagna er að finna : mynstur, uppröðun, hversu margir án þess að telja, tölur sem heildir, sætisgildi, reikniaðgerðirnar fjórar, almenn brot og tugabrot, hnit, námundum, súlurit, hliðrun, speglun, plús talna, sléttar og oddatölur og einföld algebra.
Námsefnið sem er í boði:
Fyrstu skrefin með Numicon – Heimasett
Fyrstu skrefin með numicon – Leikskólasett
Grunnsett
Skólasett 1
Skólasett 2
Brúum bilið – sérkennsluefni
Þrautalausnir
Sömu námsgögnin eru notuð út í gegn með öllum settunum sem eru í boði en þegar líður á bætast við m.a. fleiri talnalínur og talnastangir.
Að auki fylgja kennsluhandbækur eða fróðleikur, efni til ljósritunar þegar þarf og leiðarvísir sem kallast: Námsmat og námsáætlanir. Þessi leiðarvísir hjálpar þeim sem er að leggja efnið fyrir að finna stöðu nemenda, fylgjast með framförum og útbúa námsáætlanir. Með því að gefa nemendum tækifæri á að nota Numicon þá hefur máltækið „Jafnt tækifæri til náms“ öðlast réttmæta þýðingu.
Með notkun Numicon gefst leikskólum og grunnskólum gullið tækifæri að brúa bilið hvað stærðfræðina varðar, með innlögn Leikskólasettsins og Grunnsettsins á leikskólanum. Samvinna milli þessara tveggja skóla með Numicon styrkir sjálfsöryggi og skilning nemenda enn betur.